Ómskoðun
Á FSN er boðið upp á ómskoðun af gallblöðru. Til þess er notað tæki sömu gerðar og við mæðraskoðun. Ábendingar fyrir ómskoðun eru kviðverkir og grunur um gallsteina eða gallblöðrubólgu. Það er enginn sérstakur undirbúningur fyrir rannsóknina, fyrir utan það að fasta í nokkra tíma. Rannsóknin er óþægindalaus.
|